Emerald og Ruby


Hér er gott strategy til að vinna Emerald Weapon og Ruby Weapon.


Ef þú ferð í Kalm eftir að Meteor kemur þá ættirðu að finna gamlan mann í einu húsinu sem vill fá þrjá hluti til að taka með sér í ferðalag. Þeir hlutir eru: Guidebook, Desert Rose, og Earth Harp. Þessi síða hjálpar þér að fá það allt.

Guidebook

Þú þarft að gera Morph á Ghost Ship til að fá það. Ég fann hann og Morph-aði í Battle Arena í Gold Saucer þar sem hann kemur stundum. Farðu með Guidebook til mannsins í Kalm og hann gefur þér Underwater Materia sem getur hjálpað þér við að ná í næsta hlut.

Earth Harp

Til að fá Earth Harp þá þarftu að vinna óvin sem er 'aðeins' erfiðari en Ghost Ship. Miðað við að Ghost ship hefur 6600 HP þá hefur þessi svona milljón. 1.000.000. Án gríns. Earth Harp er nefnilega Equippað hjá Emerald Weapon sem ferðast um í sjónum rétt hjá Junon. Þú þarft að fara í kafbátinn til að lenda í bardaga og klessa á hann.

Þegar ég vann Emerald þá var það frekar lame... allir hjá mér voru í Lv 70+, allir með 6000+ HP, svo bara W-Summon KoTR+HP Absorb Mime þangað til að hann var steindrepinn. Hér er svona 'duty' hvers og eins í bardaganum:

Cloud: W-Summon KoTR
Red XIII: Mime
Cid: Mime

Ég lét svo einn hafa Final Attack tengt við Phoenix til vonar og vara. Allir höfðu Mime. Ég reyndi að láta vopn hjá þeim sem höfðu Double eða Triple AP growth. Cloud hafði Apocalypse, Cid hafði Scimitar og Red XIII hafði Limited Moon. Svo gerði Cloud bara W-Summon KoTR og svo allir HP Absorb Mime. Ef Emerald var með einhverja stæla þá kom Phoenix bara og hjálpaði til (semsagt, K.O., Phoenix endurlífgar) . ATH! Ef Phoenix kemur þá þarf að kasta KoTR aftur, því ef Mime er gert þá kemur Phoenix. Annars er gott að hafa einhver Master-uð HP Plus og sá sem hefur KoTR MP Plus. Svo bara eitthvað sem þarf að þjálfa. Annars er Emerald með árás sem gerir 1111•Fjöldi Materia. Þess vegna er gott að hafa ekki of mikið af Materia. Regen hjálpar einnig í bardaganum. Þú færð Earth Harp sem Item fyrir bardagann. Þú getur látið manninn í Kalm hafa það fyrir allar MASTER Materiurnar. Ó já. Sweet life. En þá yfir í...

Desert Rose

Desert Rose er equippað hjá sterkara vopni. Það heitir Ruby og býr í eyðimörkinni hjá Gold Saucer. Þú sérð aðeins part af honum en ef þú snertir hann (annaðhvort á Gold Chocobo eða Highwind) þá kemur hann allur upp. Hér er Strategy sem ég tel virka vel:

Nauðsynlegt er að nota aðeins Cloud í bardaganum. Áður en þú ferð í bardagann þá skaltu bara lenda í einhverjum léttum bardaga og drepa hina 2 í partíinu. Hér er Materian fyrir bardagann:

Cloud: 2-3 masteruð HP Plus, KoTR tengt við HP Absorb, W-Summon, 1-2 Masteruð MP Plus og Master Summon tengt við HP Absorb. Ef þú vilt vera MJÖG öruggur hafðu þá líka Final Attack tengt við Phoenix.

Strax í byrjun bardagans þá setur hann klærnar í sandinn því 2 gaurar eru K.O. Notaðu W-summon og gerðu það á leggina fyrir aftan þig, svo á Ruby sjálfan. Eftir að KoTR hefur verið notað á dótið fyrir aftan þig þá getur Ruby ekki ráðist á þig alvarlega í nokkurn tíma. Út af því að þú hefur HP og MP absorb þá munu statsarnir þínir vera símaxaðir út. Þú ættir að vinna hann auðveldlega svona. Eftir að hafa sigrað farðu þá með Desert Rose til gaursins í Kalm til að fá Gold Chocobo. En út af því að þú hefur þurft að hafa KoTR í bardaganum þá ertu örugglega með Gold Chocobo. Auk þess er miklu skemmtilegra að fá hann sjálfur.

Einnig er til leið sem er að hafa Ultimate Sword og Imperial Guard og tengja svo KoTR við Magic Counter og tengja Mime við Counter. Hafa bara Cloud lifandi. Nota svo Hero's Drink og rústa honum með Counter.

Til baka
©2004-2008 Jormundgand