Velkomin á heimasíðuna mína!!
Ég heiti
Elísa Gígja Ómarsdóttir.
Ég fæddist 11.mars
Þú ert gestur númer:
Dagbók
Myndir
Tenglar
Fjölskyldan
Video frá Goðheimum
Sendu okkur póst
Mynd fyrir alla Poolara!
Sumarmyndir 2003
9. desember 2003
Hæ, það er svo langt síðan að mamma og pabbi uppfærðu síðuna að það eru örugglega næstum allir búnir að gleyma mér.  En hvað um það.  Ég ætla nú samt að láta þau setja inn nýtt "stöff" fyrir þá örfáu sem kunna að kíkja hingað fyrir einhverja tilviljun.  Nú er ég alveg að verða 9 mánaða og er farin að standa upp og var áðan að ganga meðfram í fyrsta sinn.  Það voru reyndar pínulítil spor en spor engu að síður, þar sem að mamma setti eitt Cheerios utan seilingar og lét mig sækja það.  En það sem allir eru nú spenntastir yfir eru myndir og því ætla ég að tengja síðu sem er búin að vera tilbúin í nokkrar vikur en hefur ekki verið tengd fyrr en nú, með myndum sem eru frá því í haust, en myndirnar eru
hér.  Eins ætla ég að búa til tvær aðrar síður með glænýjum myndum af mér HÉR og HÉR.
Þetta er fyrsta myndin sem var tekin af mér standandi....sést hvað ég er montin?